Þjónusta - Fjáraflanir

Safnanir fyrir hópa og félög

Margir hópar og félög safna reglulega flöskum og dósum. Með samstarfi við Græna skáta verður verkefnið auðveldara og tekur styttri tíma.

Hvernig virkar þetta?

Söfnunarhópur mætir á fyrirfram ákveðinn stað ásamt Grænum skátum. Söfnunarhópur gengur í hús og safnar flöskum og dósum. Grænir skátar mæta með þann búnað sem þarf til að flokka í plast, ál og gler. Grænir skátar keyra svo afrakstrinum í burtu, telja og leggja upphæðina sem safnaðist inn á reikning hópsins.

Frábær fjáröflunarleið
Dósasafnanir eru frábær fjáröflunarleið og ná oft þúsundum og jafnvel tugþúsundum eininga sem skila umtalsverðum ávinningi.

Aðrir valkostir
Einnig er hægt að flokka sjálf og fara með í gám í Hraunbæ 123, en alltaf þarf að hafa samband við Græna skáta fyrirfram.

Bóka söfnun

Viltu safna með aðstoð okkar? Fylltu út eyðublaðið og við munum hafa samband.

Bóka söfnun