Þjónusta - Skynjarar
REEN Skynjarar – Snjöll lausn fyrir sorphirðu
Fylgstu með stöðu íláta með nytsamri tækni til að draga úr kostnaði og umhverfisáhrifum.
Hvað eru REEN skynjarar?
Ert þú með sorpgám, djúpgám eða annað ílát sem þarf að fylgjast með hvenær fyllist?
Skynjarar frá REEN hjálpa þér að fylgjast með stöðu íláta. REEN er norskt fyrirtæki sem er leiðandi í upplýsingatækni á sviði sorphirðumála. Grænir skátar eru umboðsaðili REEN á Íslandi.
Hvernig virka skynjararnir?
Skynjarar eru settir í gáma, kör, tunnur eða önnur ílát. Umsjónaraðili fær aðgang að hugbúnaði í tölvu, síma og spjaldtölvu, allt eftir því hvað hentar. Þar er hægt að fylgjast með hve mikið er komið í ílátið.
Tæmingar eru tímasettar með tilliti til raunverulegrar stöðu. Með þessari tækni er hægt að draga úr kostnaði og umhverfisáhrifum, þar sem gámar eru einungis tæmdir þegar raunveruleg þörf er á.
Einnig er hægt að fylgjast með t.d. olíutönkum, vatnstönkum og fleiru.
Villtu vita meira?
Hafðu samband!

