Um okkur
Grænir skátar Síðan 1989
Grænir skátar eru umhverfisfyrirtæki í eigu Bandalags íslenskra skáta og hafa verið starfandi frá árinu 1989.
Um Græna Skáta
Grænir skátar eru umhverfisfyrirtæki í eigu Bandalags íslenskra skáta og hafa verið starfandi frá árinu 1989.
Allur ágóði af starfsemi Grænna skáta rennur óskertur í heilbrigt og öruggt skátastarf um allt land.
Okkar hlutverk : Við styðjum æskulýðsstarf, skapa störf fyrir fólk sem þarf stuðning á vinnumarkaði, og stuðlum að endurvinnslumálum fyrir umhverfið.
Umhverfisáhrif okkar
Framleiðsla nýrra umbúða úr hráefni veldur losun CO₂. Þegar gosdósir og plastflöskur eru endurunnar í stað þess að fara í urðun eða nýframleiðslu sparast stór hluti þeirrar losunar.
Grænir skátar skila árlega til endurvinnslu efni sem samsvarar 3,4 milljónum kg CO2 ígilda. Það jafngildir því að taka 1600 bíla úr umferð í heilt ár miðað við að hver bíll aki 15 þús. km. á ári og losi um 135 g CO2 á hvern km.
Okkar hlutverk
Umbúðir sem berast Grænum skátum
Styðja við skátastarf
Styðja við öflugt skátastarf fyrir börn og ungmenni
Skapa störf
Skapa störf fyrir fólk sem þarf aukinn stuðning á vinnumarkaði
Endurvinnsla
Fara í endurvinnslu sem er gott fyrir umhverfið
starfsfólk okkar
Fjölbreyttur og öflugur hópur
Hvað gerum við?
Hjá Grænum skátum starfar fjölbreyttur og öflugur hópur starfsfólks. Störfin eru fjölbreytt en snúast að stórum hluta um flokkun drykkjarumbúða á Eldshöfða, vinnu við talningarvélar og samskipti við viðskiptavini í Hraunbæ og akstur þar sem gámar eru tæmdir, fyrirtæki og húsfélög heimsótt eða félög aðstoðuð með safnanir.
Atvinna með stuðningi
Grænir skátar eru í samstarfi við Vinnumálastofnun í gegnum verkefnið "Atvinna með stuðningi" sem er einstaklingsmiðuð þjónusta fyrir fólk með skerta starfsgetu. Markmiðið er að einstaklingar finni vinnu á almennum vinnumarkaði og ef óskað er eftir, fái stuðning við hæfi. Margir lykilstarfsmenn hafa komið til starfa hjá Grænum skátum í gegnum þetta verkefni.
Samfélagslegt framlag
Grænir skátar eru einnig í samstarfi við Fangelsismálastofnun, þar sem einstaklingar í samfélagsþjónustu fá tækifæri til að leggja sitt af mörkum til samfélagsins.
stjórnendur grænna skáta
Helstu stjórnendur
No cards match your current filters.
stjórnendur grænna skáta
Stjórn
Sævar Skaptason, stjórnarformaður
Jón Þór Gunnarsson
Elva Rakel Jónsdóttir
Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir
Benedikt Þorgilsson

